Rokk í Reykjavík 2.0
24.5.2012 | 07:30
Aðeins farinn að hlakka til kvöldins, belgíski læknirinn og íslenskutónlistaráhugamaðurinn Wim Van Hooste hefur skipulagt afmælishljómleika í tilefni þess að 30 ár eru liðin síðan Rokk í Reykjavík var frumsýnd.
Nú er það ekkert leyndarmál að við Fræbbblar vorum frekar ósáttir við okkar hlut í myndinni og fannst hún ekki gefa mynd sem var neitt nálægt því sem við vorum að gera.
En þetta verður á Gauknum í kvöld (24. maí) og dagskráin verður:
20:00 Rímur20:05 Sudden Weather Change
20:40 Morðingjarnir
21:15 Æla
21:50 Hellvar
22:15 Hlé: Sigurvegari úr Videó samkeppni kynntir Spjall frá Wim Van Hooste
22:30 Mosi frændi
23:05 Dr. Gunni
23:40 Q4U
00:15 Fræbbblarnir
01:00 (lýkur)
Þannig að þetta getur eiginlega ekki klikkað. Ég hlakka að minnsta kosti mikið til.
Helgi Briem nær ekki að spila á bassa hjá okkur, en Þorsteinn sem er rétt ný genginn í hljómsveitina aftur spilar á bassann og Ríkharður, sem líka er nýkominn heim, spilar á gítar.
Og það stefnir í að hluti blásarasveitar hinnar frábæru Ojba Rasta taki tvö lög með okkur.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.